GARÐÞJÓNUSTA REYKJAVÍKUR Fá tilboð →

HEILDARLAUSNIR
LÓÐAFRAMKVÆMDA

Við tökum að okkur fullnaðarfrágang lóða og alhliða lóðarframkvæmdir fyrir nýbyggingar, atvinnusvæði og heimilislóðir. Markmiðið okkar er að vera traustur samstarfsaðili fyrir byggingaverktaka, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga sem vilja fela einum aðila heildarverkefnið. Við sjáum um framkvæmdina frá upphafi til enda með áherslu á skipulag, fagleg vinnubrögð og vandaðan frágang.

Fagleg heildarlausn fyrir verktaka, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga

Við erum reynslumiklir í lóðaframkvæmdum og höfum unnið fjölbreytt verkefni af mismunandi stærðum. Við búum yfir góðum tækjakosti sem nýtist vel í bæði stærri og minni verkum. Við vinnum mest á höfuðborgarsvæðinu en getum tekið að okkur stærri verkefni úta landi. Við leggjum upp úr því að vera sanngjarnir í verði og standa við það sem við tökum að okkur

  • Við bjóðum upp á heildarlausnir í lóðaframkvæmdum og tökum að okkur alla helstu verkþætti sem þarf til að fullgera lóð og ýmis verkefni.
  • Það getur meðal annars falið í sér jarðvinnu, hellulagnir, snjóbræðslu, þökulögn, stoðveggi, uppsetningu grindverka, almenna smíðavinnu og allar aðrar lóðarframkvæmdir.
  • Við leggjum mikið upp úr því að vera traustur samstarfsaðili í verkefnum þar sem margir verkþættir þurfa að ganga saman frá upphafi til enda.
  • Markmið okkar er að skila vandaðri framkvæmd og góðum frágangi. Við leggjum áherslu á að verkið gangi upp í heild og klárist á réttum tíma.

AF HVERJU AÐ VELJA OKKUR?

Heildarlausn frá A–Ö

Einn aðili sem sér um samræmingu, framkvæmd og frágang

Fagleg framkvæmd

Vönduð vinnubrögð, traust þjónusta og snyrtilegur frágangur

Sanngjarnt verð

Við leggjum upp úr að verðið sé sanngjarnt og verkið unnið eins og samið er um

Verkefni af öllum stærðum

Við tökum að okkur bæði minni og stærri verkefni

Heyrðu í okkur og fáðu frítt tilboð fyrir þitt verkefni

Hafðu samband og við förum yfir verkefnið með þér án skuldbindingar.

Senda fyrirspurn →